Nafnlausir þingmenn sjálfstæðisflokks

Morgunblaðið stendur með sínum. Í dag er stærðarinnar grein eftir Agnesi Bragadóttur þar sem varað er við að Katrínu Jakobsdóttur takist að mynda ríkisstjórn. Hugsanleg ríkisstjórn er sögð munu hækka skatta stórkostlega.

Lesturinn veikir fullyrðingarnar mikið. Heimildarmenn Morgunblaðsins eru, sem svo oft áður, ónafngreindir, það er nafnlausir, þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Nafnlausar heimildir eru ekki jafnar öðrum. Þær eru jafnvel ekki gild heimild, einkum þegar ljóst er að nafnleysingjarnir koma hvergi nærri, eru ekki gerendur í því máli sem fjallað er um.

Það er ekki rétt að dreifa óstaðfestum skrifum Morgunblaðsins, en hér er eitt sýnishorn:

 „Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem rætt var við í gær taldi útilokað að Viðreisn gæti samþykkt skattahækkunaráform VG. „Það er ekki auðvelt að sjá það fyrir að bakhjarlar Við- reisnar, þeir Helgi Magnússon og Þórður Magnússon, muni taka því þegjandi og hljóðalaust að auðlegðarskattur verði tekinn upp að nýju,“ sagði hann.“

Mogginn segir annan landsbyggðarþingmann telja að tilraun Katrínar nyti nánast eindregins stuðnings þingmanna flokkanna fimm á höfuðborgarsvæðinu en öðru máli gegndi um þingmenn flokkanna úti á landi.

Morgunblaðið má berjast gegn hugsanlegri ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Blaðið á samt sem áður að virða almennar reglur í blaðamennsku. Morgunlaðið er misnotað.