Mogginn herðir tökin á guðna

Morgunblaðið ver leiðara dagsins í Guðna Th. Jóhannesson og Icesave. Í blaði dagsins er einnig að finna skoðanakönnun þar sem kemur fram að Guðni nýtur, samkvæmt henni, fylgis 55 prósenta svarenda.

Davíð Oddsson missir mest fylgi milli kannanna og Halla Tómasdóttir bætir mest við sig. Í könnuninni staðfestast yfirburðir Guðna Th. Jóhannessonar enn og aftur.

Morgunblaðið neitar greinilega að leggja niður vopnið og ver leiðara dagsins í umfjöllun um Guðna Th. Jóhannesson og Icesave. Trúlegast hefur komið í ljós að þessi aðferð, til stuðnings ritstjóranum, dugar hvergi. Finna verður aðra leið eigi ekki illa að fara.

Davíð Oddsson tapar tæplega tuttugu prósentum milli kannanna. Hann nýtur nú, samkvæmt þessari nýju könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið, aðeins fylgis rétt rúmlega helmings kjósenda Sjálfstæðisflokksins.

Og það þrátt fyrir opinbera stuðningsyfirlýsingu Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins. Eflaust mikil vonbrigði á þeim bæjum.

Sigurjón M. Egilsson.