Merkilegt er hvað mannskepnan getur átt erfitt, með sumt. Einkum að sleppa því sem maðurinn hefur fengið eða getur fengið.
Stofnað hefur verið til þjóðhagsráð og eins gott er að í það ráðist hinir mætustu menn, ekki konur.
Ráðið skipa Sigurður Ingi Jóhannsson, Bjarni Benediktsson, Þorsteinn Víglundsson, Halldór Halldórsson og Már Guðmundsson. Fimmfaldur Dressmann. Miðaldra karlar í jakkafötum. Ekkert ungt fók, engin kona. Svona var Ísland og svona er Ísland.
Hver og einn þessara manna er eflaust hinn ágætasti maður. Um það er bara ekki spurt. Trúlegast er að þeim hafi ekki þótt undarlegt að sitja saman við borðið. Miðaldra karlar, og allir eins.
Við hin, við sem viljum ekki hafa þetta svona, eigum langt í land. Karlarnir eru fastir fyrir. Þeir gæta að sínu.
Við myndatökuna hefðu þeir átt að standa á fætur, vera menn með mönnum, með stjarfa hönd á pung.
Í takt við umræðu dagsins, verður að segja að þetta er nokkuð kúkalabbalegt. Við karlana fimm má segja, þið eruð ekkert merkilegri en konurnar, en unga fólkið eða hver sem er.
Sigurjón M. Egilsson.