Margfaldur viðbjóður

Framganga eigenda Brúneggs er ömurleg. „Þetta er algjör viðbjóður,“ segir landbúnaðarráðherrann, Gunnar Bragi Sveinsson. Viðbjóðurinn er víða. Hann er ekki bara hjá Brúneggi.

Matvælastofnun varaði fólk ekki við. Dýraníðið hélt áfram í áraraðir. Ömurlegt athæfi gegn varnarlausum dýrum fékk að viðgangast og neytendur voru ekki upplýstir um hryllingin. „Mín fyrstu viðbrögð - ég varð eiginlega orðlaus þegar ég horfði á þetta í gær. Þetta er algjör viðbjóður hvernig þarna hefur verið staðið að,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson landbúnaðarráðherra í samtali við RÚV. Vitneskja um hvernig komið var er til í ráðuneytinu.

„Þegar ég heyrði fyrst af þessu fyrir nokkrum dögum og Kastljós var að afla upplýsinga fyrir þáttinn var farið yfir þetta í ráðuneytinu. Mér sýnist að þarna hafi orðið mistök þegar starfsmaður sem fékk þetta á borð til sín hætti störfum. Því miður virðist málið ekki hafa skilað sér til annars starfsmanns þegar viðkomandi hættir,“ sagði ráðherrann við RÚV.

Þetta er ekki viðunandi. Þetta er svo stórt mál, svo alvarlegt að það má ekki og á ekki að geta týnst eða gleymst innan ráðuneytisins. Er það svo, að þegar starfsmaður ráðuneytis lætur af störfum að þá fái öll verkefni þess starfsmanns endi. Búið. Svo virðist vera.

Eigendur fyrirtækisins, forráðafólk Matvælastofnunar og yfirmenn ráðuneytisins bera öll ábyrgð í þessu máli. Misalvarlega, en allsstaðar er ábyrgðin alvarleg.