Í gær greindi Fréttablaðið frá því að lögreglan hefði handtekið tvær ungar konur sem voru á leiðinni úr skólanum, Fjölbraut Ármúla, til þess að flytja þær síðan úr landi. Brottvísanirnar hafa verið til mikillar umræðu í kjölfarið.
RÚV hefur nú birt tölvupóst frá Magnúsi Ingvasyni, skólameistara Fjölbrautskólans við Ármúla, sem hann sendi samstarfsfólki sínu í dag.
„Væntanlega verða þær fluttar í hinar alræmdu flóttamannabúðir sem þar er að finna,“ segir Magnús í póstinum um stelpurnar sem voru fluttar til Grikklands.
„Það er ekki oft sem ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur, en ég gerði það þegar ég sá þennan fatlaða bróður þeirra bókstaflega bögglað inn í bíl,“ segir hann og bætir við: „Sama hverjar skoðanir fólks er á málefnum hælisleitenda, þá er þessi meðferð á fólki algjörlega ómannúðleg og til skammar fyrir íslensk stjórnvöld.“