Magaverkir barna getur verið birtingarmynd kvíða

Kvíði hjá börnum kemur oftast fram á kvöldin þegar búið er að slökkva ljósin og þau tilbúin fyrir svefninn. Þá eru þau ein og ekkert að dreifa huganum.

Birtingarmynd kvíða hjá börnum kemur oft fram með orðunum „mér er illt í maganum,“ segir á Heilsutorg.

Einnig getur kvíði hjá börnum gert vart við sig á morgnana þegar fara á í skólann. Börn geta verið með aðskilnaðar kvíða eða kvíðinn getur verið vegna stríðni í skólanum.

Ástæða þess að börnin greina okkur fullorðna fólkinu frá því að þeim sé illt í maganum er vegna þess að þeim er það í raun og veru.

Maginn er heimili iðra taugakerfisins og er oft kallað hinn annar heili. Taugarnar í maga og kvíðinn búa til tilfinningu eins og um magaverk sé að ræða.

Þetta er erfiður hringur að lenda í því á meðan kvíðinn er að valda magaverk, þá orsakar þessi magaverkur meiri kvíða.

Í einni rannsókn þá kom fram að 51% af fólki sem upplifði magaverki sem börn fengu kvíðasjúkdóm seinna í lífinu.

Það sem skiptir mestu máli að muna varðandi börn sem oft kvarta undan magaverkjum er að þau eru ekki að plata. Þetta er ekki athyglissýki. Þetta er þeirra líkami að upplifa kvíða og sest hann að í maganum.

Hvað skal gera?

Það eru margar mismunandi leiðir sem nota má til að vinna á kvíða hjá börnum.

Best er auðvitað að ræða við þau. Fá þau til að tala um sinn dag og reyna að komast að niðurstöðu um það hvað er að orsaka kvíða hjá þínu barni.

Ef það er ekki að ganga þá er auðvitað nauðsynlegt að leita til sérfræðings og fá hjálp.