Jón Múli Árnason, sem stundaði sjó á sumrin sem ungur maður, heillaðist af dugnaði og krafti sjómanna. Hann sagði, í viðtali sem ég tók við hann, letingja vera lífshættulega – til sjós. Sem er eflaust rétt. Af nokkurri reynslu af sjómennsku get ég svo sem tekið undir með Jóni Múla, allavega eru letingjar nánast óþolandi.
Letingjar koma verkum sínum yfir á aðra. Láta aðra vinna sín verk. Mér dettur þetta í hug þegar ég les að einn þingmanna þjóðarinnar hefur ekki hirt um að mæta í vinnuna svo vikum skiptir. Hann er kannski ekki lífshættulegur. Væri hann sjómaður er ég viss um hvað væri gert við hann.
Letingjar eru hið minnsta óþolandi.