Leiðarlok höskuldar þórs

Nánast er sama hver svarar, svarið er það sama. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mun leggja Höskuld Þór Þórhallsson í baráttu þeirra tveggja um fyrsta sæti Framsóknarflokkksins í norðausturkjördæmi. Þó fjarri fari að Sigmundur Davíð eigi vísan stuðning allra, mun flokksfólk ekki fórna honum í baráttunni við Höskuld Þór. Meira þarf til.

Þingkonurnar Þórunn Egilsdóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir eru í varnargarði formannsins. Óvíst er hvort formaðurinn þurfi á þeim að eða framgöngu þeirra að halda í komandi átökum. Trúlega er staða hans sterkari en svo. Gangi þetta allt eftir er nokkuð víst að Sigmundur Davíð stígur þar ágætt skref til fleiri vinninga.

Um helgina kemur í ljós hvaða takt hann slær fyrir komandi flokksþing. Tvær næstu helgar verða afdrifaríkar fyrir Framsóknarflokkinn og ekki síst fyrir formanninn.

Höskuldur Þór mun lúta í gras. Þar með er trúlegast komið að leiðarlokum hjá honum – alla vega að sinni. Hann ber ekki traust til formannsins og getur varla hugsað sér að vera í öðru sæti framboðslista, í skjóli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

(Fréttin er óbreytt frá því hún birist hér 9. september s.l.)