Landshlutar berjast um framsókn

Sigurður Ingi Jóhannsson mun eiga erfitt með að draga í land og falla frá framboði til formanns Framsóknarflokksins. Að óbreyttu verður Sigmundur Davíð Gunnlaugsson einnig í kjöri. Báðir eiga mikið undir að verða kjörnir formenn. Sigmundur bæði vill og verður að ná endurkjöri, pólitísk framtíð hans er undir.

Sigurður Ingi hefur sagst ekki vilja vera áfram varaformaður, undir formennsku Sigmundar Davíðs. Hann hefur talað nógu skýrt, hann íhugar að bjóða sig fram til formanns.

Nú hefur Gunnar Bragi Sveinsson opinberað áhuga sinn á að verða varaformaður flokksins. Gunnar Bragi er ákveðnasti stuðningsmaður Sigmundar Davíðs. Öllum er ljóst að það er uppgjör framundan. Það verða átök.

Fylkingarnar eru annars vegar tengdar Skagafirði, með einum eða öðrum hætti, og svo eru það Sunnlendingar.

Það eru landshlutaátök í Framsóknarflokki.