Kvótakerfið hefur tekist vel

Guðmundur Kristjánsson, útgerðarmaður i Brimi, segir að kvótakerfið hafi lánast vel og tekist með ágætum. Hann hafnar að kvótakerfið hafi leikið byggðir illa. Þar spili annað stærri rullu.

Guðmundur er í löngu viðtali í Þjóðbraut í kvöld. Þar svarar hann spurningum um kvótann, auðlindagjöld, samþjöppun, byggðaröskun og annað sem rætt er um vegna stöðu sjávarútvegsins.

Guðmundur segir einnig Pírata vilja taka upp nýfrjálshyggju í sjávarútvegi þar sem hæstbjóðandi fái þær aflaheimildir sem hann æskir og vill borga fyrir.