Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, gagnrýnir Sjálfstæðisflokkinn harðlega í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Grein Jóns snýr að flokkaskiptum Birgis Þórarinssonar, fyrrverandi þingmanns Miðflokksins og núverandi þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Honum er ekki skemmt. „Hann var einfaldlega að svindla á kjósendum, þegar hann lét kjósa sig fyrir flokk sem hann yfirgefur svo strax að kjörinu loknu vegna atvika sem lágu fyrir áður en kosið var,“ segir Jón.
Jón beinir því næst spjóti sínu að Sjálfstæðisflokknum. „Ég held ég myndi varla nenna að stinga niður penna til þess eins að áfellast þennan mann fyrir hátterni hans. Það er hins vegar ástæða til að staldra við og spyrja, hvers vegna Sjálfstæðisflokkurinn tekur þátt í þessu með honum? Með því háttalagi gerist sá flokkur meðsekur í háttsemi mannsins.“
Jón segir þingflokk Sjálfstæðisflokksins taka þátt í siðlausum brotum. „Komið hefur fram í fréttum að enginn þingmanna flokksins greiddi atkvæði gegn því að taka við honum. Þingflokkurinn hefur þá upplýst að hann er til í að taka þátt í siðlausum brotum annarra ef hann aðeins telur sig hagnast á því – í þessu tilviki með því að fá viðbótaratkvæði á þingi.“
Þá hafi Birgir ekki gert hreint fyrir sínum dyrum. „Það eru nokkrir dagar liðnir frá kosningum og ekki er vitað um nein tíðindi á vettvangi stjórnmála sem gefa manninum tilefni til þessara sinnaskipta. Ljóst er að hann bauð sig fram undir fölsku flaggi, enda hefur hann sjálfur ekki skýrt athæfi sitt með öðru en gamalli atburðarás sem lá öll fyrir löngu fyrir kosningarnar,“ segir Jón.