Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari segir að Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hafi ekki vald til að taka yfir ákvarðanir um mál flóttafólks. Því spyr hann hvort að stjórnmálamenn sem gagnrýni ráðherrann sé trúverðugt.
„Í árásum á dómsmálaráðherra nú hefur því m.a. heyrst fleygt að hann hafi vald til að setja nýjar reglugerðir á grundvelli heimilda í lögunum, sem myndu leysa mál þeirra sem nú á að senda úr landi. M.a. heyrði ég ummæli lögmanns fólksins í þessa átt.
Þetta er undarlegur málflutningur. Er verið að óska eftir að ráðherra setji sérstaka reglugerð fyrir þennan afmarkaða hóp? Allir ættu að sjá að það er ekki unnt að gera. Reglugerðir verða að vera almenns eðlis en mega ekki beinast sérstaklega að hagsmunum tiltekinna manna sem vilja fá aðra afgreiðslu mála en aðrir hafa fengið.“
Jón Steinar segir málflutning gagnrýnenda Jóns undarlegan og spyr: „Er verið að óska eftir að ráðherra setji sérstaka reglugerð fyrir þennan afmarkaða hóp?“. Hann heldur því fram að allir ættu að sjá að það er ekki unnt að gera þar sem reglugerðir verði að vera almenns eðlis en megi ekki beinast sérstaklega að hagsmunum tiltekinna manna sem vilja fá aðra afgreiðslu mála en aðrir hafa fengið.
„Allt ber þetta að sama brunni. Dómsmálaráðherra hefur ekki vald til að taka yfir ákvarðanir um mál þessa fólks, nema breytt lög komi til. Heimild til að leggja fram lagafrumvörp er í höndum alþingismanna, meðal annarra þeirra sem hæst láta um þessar mundir.
Er það ekki dálítið dæmigert að sumir stjórnmálamenn séu fyrst, meðan fjallað er almennt um skipan þessara mála, sammála um að ráðherra skuli ekki hafa þetta vald í höndum, en ráðast síðan á hann við fyrsta tækifæri fyrir að beita ekki því valdi sem hann hefur ekki?“ segir Jón Steinar sem spyr að lokum: „Eru þeir stjórnmálamenn trúverðugir sem haga sér svona?“