Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hafnar því að hafa hótað Unni Berglind Friðriksdóttur, formanni Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi, líkt og hún heldur fram.
„Ég hafna því eindregið að hafa beitt nokkurn mann hótunum í tengslum við framangreint.“ segir ráðherrann.
Fyrr í dag sagðist Unnur hafa fengið hótanir frá „jakkafataklæddum mönnum innan flokksins“. Þar á meðal væri einn háttsettur maður, en í kjölfarið greindi hún frá því, í samtali við DV, að um Jón væri að ræða.
Jón skrifar færlsu um málið á Facebook, en þar segir hann:
„Ég átti eitt stutt símtal við formann Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi sunnudaginn 30. október þar sem ég benti henni á ólögmæti listanna. Ég lýsti áhyggjum mínum af því að ef ekki yrði brugðist við væri hætta á að fáir hefðu heimild til setu á landsfundi fyrir hönd Kópavogs.“