Jóhann bendir á ósamræmi hjá Guðmundi: Segir orðin ódýr ef ekkert gerist

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur bent á ákveðið ósamræmi í málflutningi Guðmundar Inga Guðbrandssonar félags- og vinnumálaráðherra. Líkt og alþjóð veit gagnrýndi ráðherrann í gær stefnu Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra, en Jóhann bendir á að á mánudag hafi Guðmundur virst ánægður með útlendingastefnu ríkisstjórnarinnar.

„Á mánudaginn var Guðmundur Ingi hæstánægður með útlendingastefnu ríkisstjórnarinnar og gat hreinlega ekki setið undir gagnrýni á hana. Daginn eftir segist hann vera óánægður með vinnubrögð og nálgun ráðherrans sem fer með útlendingamál í ríkisstjórninni.“ skrifar Jóhann og vísar í frétt mbl.is, þar sem Guðmundur sagði:

„Hvers vegna er það sem Íslend­ing­ar hafa núna síðan árið 2018, og þá minni ég á þá staðreynd að Katrín Jak­obs­dótt­ir tók við sem for­sæt­is­ráðherra árið 2017, í sí­aukn­um mæli tekið á móti fleira og fleira fólki, svo mun­ar hundruðum? Það er já­kvætt. En samt þarf maður að sitja und­ir því að hér sé verið að gera minna en aðrir eða önn­ur lönd.“ sagði Guðmundur þá, en í gær sagði hann þetta þegar hann var spurður út í hvort eining væri innan ríkisstjórnarinnar:

„Nei það er ekki rétt og ég gerði mjög alvarlegar athugasemdir við þá vegferð sem ráðherrann er á á ríkisstjórnarfundi í morgun.“ 

Því spyr Jóhann Páll nú hvort fólki lítist betur á mánudags-Guðmund eða þriðjudags-Guðmund. Og bætir við að honum þyki orð ráðherrans ódýr ef aðgerðir fylgi ekki.

„Hvort eigum við að taka mark á mánudags-Guðmundi eða þriðjudags-Guðmundi? Mér líst betur á þann seinni. En orð eru ódýr ef aðgerðir fylgja ekki.“