Bjarni, engar blekkingar

„Við þessar aðstæður er augljóst að auðvelt er að lækka tekjuskattshlutfallið verulega. Nú er ekki hægt að blekkja neinn með því að segja að ekki sé „svigrúm“ til þess að lækka skattinn og sama má segja um útsvar sveitarfélaga.“ Þannig vitna Staksteinar Morgunblaðsins, það er Davíð Oddsson, orðrétt í  Vef-Þjóðviljann sem segir að skatttekjur ríkis og sveitarfélaga hafi vaxið verulega. Þannig hafi tekjuskattur hækkað um 21 prósent.

Gagnrýnendurnir í Sjálfstæðisflokki halda áfram og skrifa: „Ríki og sveitarfélög fá nú mun meira fé í kassann vegna útsvars og tekjuskatts og þá hlýtur að vera hægt að lækka prósenturnar eitthvað. Verði það ekki gert, er skýringin einfaldlega sú að þingmenn og sveitarstjórnarmenn vilja ekki lækka álögur á vinnandi fólk. Því verður ekki lengur trúað að það sé „ekki hægt“ að lækka gjöldin.

Sjálfstæðisflokkurinn er enn í ríkisstjórn. Stjórnin hefur traustan þingmeirihluta. Kjörtímabilinu lýkur ekki fyrr en næsta vor. Enn á eftir að samþykkja fjárlög næsta árs. Það er hreinlega skylda núverandi stjórnarþingmanna að sjá til þess að skattar á landsmenn verði lækkaðir um næstu áramót. Allir vita að vinstriflokkarnir vilja ekki lækka skatta á fólk.

Ef núverandi þingmeirihluti ákveður að rjúfa þingið, án þess að lögfesta áður umtalsverðar skattalækkanir, hafa þingmenn Sjálfstæðisflokksins kastað frá sér ótrúlegu tækifæri til að hrinda helsta stefnumáli flokksins í framkvæmd. Hvernig gætu stjórnar- þingmenn réttlætt það að rjúfa þing, frekar en að samþykkja fjárlög með umtalsverðum skattalækk unum á vinnandi fólk?“

Hafa skal í huga að formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, er ráðherra skattamála.

-sme