Illugi segir ríka Íslendinga halda venjulegu fólki í „fangelsi fullveldisins“

Fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson skrifar áhugaverða færslu á Facebook í dag. Þar deilir hann frétt The Guardian um að bretar hafi eytt sex milljörðum meira í matarinnkaup eftir að þeir gengu úr ESB.

„Öll loforð um betri tíð fyrir Breta eftir Brexit hafa reynst vera blekkingar og lygar. Nú síðast hefur komið í ljós að matarverð hefur hækkað verulega sem kemur verst niður á fátæku fólki.“ skrifar Illugi.

Hann segir síðan fram að á Íslandi sé matvöruverð einnig hærra en ef við værum í ESB.

Þá fullyrðir Illugi að ríka fólkið á Íslandi vilji þó halda alþýðunni í fangelsi og banna umræðu um kosti í Evrópusambandsins.

„Hér á Íslandi er matarverð hærra en ef við værum í ESB sem kemur líka verst niður á fátæku fólki. Ríka fólkið hér á landi vill hins vegar halda okkur alþýðunni í fangelsi fullveldisins og bannar umræður um kosti þess að ganga í Evrópusambandið.“