Eygló Harðardóttir hefur skapað sér þá sérstöðu meðal ráðherra í ríkisstjórn Íslands að hafa verið á móti máli frá fjármálaráðherra, máli ríkisstjórnarinnar, og setið hjá við atvkæðagreiðslu í Alþingi. Hún hefur fengið bágt fyrir frá samráðherrum sínum.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir sagði, af þessu tilefni, í fréttaviðtali: „En auðvitað er það svo að þegar við erum í ríkisstjórnarsamstarfi, þá er afskaplega mikilvægt að við stöndum saman í því sem gerist við ríkisstjórnarborðið. Við eru ekkert alltaf glöð með allt sem kemur út, en svo stöndum við sameiginlega að því. Ef það eru mörg svona tilfelli þá gæti það reynst erfitt er varðar stjórn landsins.“
Aðrir ráðherrar hafa heldur ekki legið á skoðunum sínum um þetta mál. Einkum Bjarni Benediktsson. Látið er sem Eygló spili ekki með liðinu sem hún er þó í.
Eygló Harðardóttir verður gestur Þjóðbrautar á Hringbraut í kvöld þar sem þetta mál, framboð hennar fyrir þingkosningarnar, hvort halda eigi flokksþing í Framsóknarflokki, hvort hún hyggist sækjast eftir formennsku í Framsóknarflokki og fleira verður til umræðu.
Umtalaðist ráðherra Íslands verður í Þjóðbraut í kvöld klukkan 21:00.