Hvers virði er langtímastefnan?

Ríkisstjórnin á miklum átökum. Eygló Harðardóttir sat hjá við afgreiðslu fimm ára áætlunar ríkisstjórnarinnar, ríkisstjórnar sem lýkur ferli sínum í þar næsta mánuði. Henni hefur ekki verið fyrirgefið, hvorki í eigin flokki né Sjálfstæðisflokki. En hver er glæpur Eyglóar?

Ef fer sem horfir munu pólitískir andstæðingar ríkisstjórnarinnar taka við. Fólk sem finnur margt að langtímastefnu fráfarandi ríkisstjórnar. Hvað verður um langtímaplaggið þá?

Væntanlega verður því snúið á haus strax og lyklaskiptin hafa farið fram. Fari þannig að stjórnarandstaðan fái lyklavöldin að stjórnarráðinu er vitavonlaust að sú ríkisstjórn vinni allt næsta kjörtímabil í vilja Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.

Fimm ára langtímaáætlun ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks verður, fari sem horfi, til mjög skamms tíma.