Þetta er ástæðan af hverju við gleymum orðum í miðri setningu

Það kannast líklega flestir við það að vera í miðri sögu þegar orðið sem við ætluðum að nota dettur skyndilega úr höfðinu á okkur. Við þekkjum orðið vel og ættum að muna það en því hefur hreinlega verið stolið frá okkur á röngu augnabliki.

Komið fram á varirnar 

Manni finnst orðið vera alveg að koma, það er rétt ókomið fram á varirnar, en það kemur ekki. Þetta fyrirbæri var fyrst rannsakað á sjöunda áratugnum, og þá kom í ljós að fólk sem fann fyrir þessu var fært um að rifja upp hvaða stafir voru í orðinu, hvaða hljóð og jafnvel þýðingu þess, þó það myndi ekki orðið sjálft. „Svona gleymska ein og sér, er alveg eðlileg,“ segir í rannsókn sem Lifðu nú þýddi.

Orð samsett úr nokkrum þáttum

Það er hægt að hugsa sér að orð sé byggt upp af nokkrum þáttum. Það hefur þýðingu og önnur hugtök og myndir tengjast því. Það hefur mismunandi form, það er ýmist borið fram munnlega, eða skrifað á pappír og í því eru atkvæði og ákveðnar áherslur.

Álag og þreyta geta skipt máli

Álag, þreyta, eða utanaðkomandi truflun geta valdið því að mönnum tekst ekki að finna orðið. Fólk á öllum aldri getur upplifað það að muna ekki ákveðið orð, en það verður algengara eftir því sem við eldumst.

Fleiri einkenni geta bent til alvarlegra vandamála

Að vera ekki fær um að muna orð, getur þá verið merki um heilaskaða, sýkingu eða slag, eða um að fólk sé að fá Alzheimer. En í þeim tilvikum ,er þá það að gleyma orðum, einungis eitt af fleiri einkennum. Ef það að gleyma orði stöku sinnum er einungis gleymska og engin önnur einkenni sem fylgja henni, er hún eðlileg.

Orðið rifjast upp

Það að muna ekki orð getur verið óþægilegt, en í flestum tilvikum gengur það fljótt yfir. Orðið rifjast upp og við höldum áfram að tala eins og ekkert hafi í skorist.

Eldra fólk slakar frekar á

Satt best að segja virtist það að gleyma orði, trufla ungt fólk meira. Það beitti alls kyns aðferðum til að þvinga orðið fram, á meðan eldra fólk beið rólegt eftir því að orðið kæmi upp í hugann.  Það virðist sem fólk ,sem hefur með tímanum vanist því að það gleymi orðum, eigi auðveldara með að slappa af, því það veit af reynslunni að orðið mun að lokum poppa upp.

Óttast frekar minnistap

Það veldur fólki sem komið er yfir miðjan aldur, á það til að hræðast gleymsku, það sé að missa minnið eða veikjast.  Ýmislegt sem við kemur minninu daprast með aldrinum, það er rétt, en þetta fyrirbæri að finna ekki orðin þó þau séu komin fram á varirnar, hefur samkvæmt rannsóknum lítið með það að gera.