Hvernig á ég að vita...?

Réttritun er mikilsverð. Nú hefur opinberast að hún er ekki sterkasta hlið þeirra Vigdísar Hauksdóttur og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Það þarf ekki að segja mikið um ágæti þeirra sem þingmanna.

Fyrir langalöngu var ég í námi til skipstjórnar. Með mér í bekk var lífsglaður og skemmtilegur maður. Færeyingur, sem talaði hreint ágæta íslensku. Stafsetningin reyndist honum oft erfið.

Í íslenskutíma las kennarinn okkar stílinn. Snemma sagði kennarinn: „Um morguninn rigndi en lygndi síðdegis.“ Þá sagði hinn bráðskemmtilegi Færeyingur hárri röddu: „Síðdegis, síðdegis, hvernig á að ég vita hvernig á að skrifa þetta helvítis síðdegis.“ Halda mætti að rigndi og lygndi hafi ekki vafist fyrir honum.

Til að gera langa sögu stutta fór svo að með ákveðinni merkjagjöf studdi ég Færeyinginn í gengum íslenskuprófið. Hann lærði kannski aldrei að skrifa síðdegis rétt, eða rigndi eða lygndi en eitt veit ég. Hann varð hinn fínasti skipstjóri.

Svo má vera að bæði Guðlaugur Þór og Vigdís Haksdóttir kunna að vera hinir ágætu þingmenn, þó svo réttritunin sé ekki lýtalaus.