Nýjasta skoðanakönnun MMR sýnir, það er lægri vikmörkin, að Framsókn myndi ekki ná mann á þing, gengi sú niðurstaða eftir. Framsóknarflokkurinn verður eitt hundrað áraá árinu. MMR mælir Framsókn með 6,4 prósent og lægri vikmörkin sýna 4,9 prósenta fylgi. Þeir flokkar sem ekki ná fimm prósentum ná ekki inn þingmanni.
Á sama tíma og fylgi Framsóknarflokksins minnkar verulega eykst fylgi Sjálfstæðisflokksins, sem samkvæmt þessu er nú stærstur allra flokka, með 25,3 prósent, einu prósentustigi meira en Píratar.
VG og Samfylkingin auka fylgi sitt en Björt framtíð fær minna fylgi nú en áður.