Hver eru þolmörk bjarna ben?

Hversu smár getur Sjáflstæðisflokkurinn orðið? Hvað má hann við miklu? Umgjörð og umsetning Sjálfstæðisflokksins miðast við drjúgt ríkisframlag, framlag sem ræðst af styrk flokksins. Því minni flokkur, því minni peningar, því meiri vandi. Fréttir hafa hermt að Sjálfstæðisflokkur sé nokkuð skuldugur og því á hann mikið undir, hvað varðar möguleika til áframhaldandi reksturs.

Meðaltal síðustu skoðanakannanna sýna fylgi Sjálfstæðisflokksins rétt um 22 prósent, 22,3 nákvæmmlega, sem gæfi flokknum sennilega fimmtán þingmenn. Það er allt önnur mynd en þegar flokkurinn var helst ekki með minna en þriðjungsfylgi. Allt önnur staða en þegar Valhöll var byggð, til að mynda.

Einhversstaðar eru þolmörkin. Kannski eru þau við tuttugu prósentin, kannski við 22 eða jafnvel 25 prósenta múrinn. Laugardaginn 29. þessa mánaðar kann pólitísk framtíð Bjarna Benediktssonar, formanns Sjáflstæðisflokksins, að ráðast. Nú bendir ekkert til annars en að Bjarni skili flokki sínum með minna kjörfylgi en nokkru sinni.

Óli Björn Kárason, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, sagði í Þjóðbraut í gærkvöld, að kosningarnar muni meðal annars snúast um hvort Sjálfstæðisflokkurinn verði í ríkisstjórn eða ekki. Fari svo að flokkurinn verði með minna fylgi en nokkru sinni og utan ríkisstjórnar verður væntanlega landsfundur boðaðar í framhaldi. Þar verður þá ný forysta kosin.