Hvar á sigmundur davíð heima?

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segist kominn heim. En hvar á hann heima? Að Hrafnabjörgum eystra, í Garðabæ, á Tortóla eða hvar? Og annað, hvaða kjördæmi verður hans í komandi kosningum? Það er ekki nóg að segjast vera kominn heim, þegar enginn veit hvar það er.

Norðaustlendingar í Framsókn voru þeir fyrstu sem höfnuðu formanni sínum. Bæði á Akureyri og eins á Héraði, sem eru þó þeir sem mönuðu Sigmund Davíð til pólitískrar þátttöku á sínum tíma.

Árið var 2009. Á einu og sama flokksþinginu var Sigmundur Davíð kjörinn kjörinn formaður og Framsókn samþykkti, með hans atkvæði meðal annarra, að Íslandi hentaði best að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Þetta er alveg satt. Gunnar Bragi vildi það, Vigdís Hauks vildi það, SDG vildi það og öll hin. Síðan eru liðin nokkur ár, ekki mörg.

Nú er svo komið að formaðurinn virðist landlaus. Framsóknarmenn, sumir hið minnsta, sjá ekki fært fyrir formanninn að bjóða sig aftur fram í norðaustri, þar sem helstu talsmenn og ábyrgðarmenn flokksins, hafa hafnað honum.

Þá er næst spurt, hvort er annað Reykjavíkurkjördæmið eða kraginn það sem Sigmundur Davíð kallar heim? Laust er fyrir hann í Reykjavík. Þrír af fjórum þingmönnum flokksins í Reykjavík ætla að hætta. Einn missti áhugann, einn sökum aldurs og þriðji þingmaðurinn gefst upp. Kemst ekki þangað sem hugurinn vill. Fyrirstaða annarra þingmanna er slík.

Einn af helstu þingmönnum Framsóknarflokkinn hefur upplýst mig um að helst sé horft til þess að rýma pláss fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson í Suðvestri, kraganum, kjördæmi Eyglóar og Willums. Hvort það verði heimakjördæmi Sigmundar Davíðs er svo sem ekki vitað með vissu.

Víst er að flokkurinn þarf að finna honum stað. Dyr eigin flokks virðast ekki standa honum opnar.