Þegar eigendur Arionbanka ákveða að afhenda fámennum hópi starfsmanna hálfan annan milljarð kippumnst við hin við. Á hvað minnir þessi ofgnótt og vitleysa? Eins má spyrja, hvaðan fær bankinn allan þá peninga, já alla þá peninga sem hann getur látið frá sér, sísona?
Auðvitað frá okkur, eða réttara sagt viðskiptavinum bankans. Vaxtaokrið hér og önnur óbiligirni hefur þessar afleiðingar. Peningar, og það alltof miklir peningar, safnast til fárra. Jafnvel þeirra sem vita bara ekkert hvað þeir eiga að gera við þetta allt saman.
Það er klukkustund þar til Seðlabankinn kynnir stýrivexti næstu mánuði. Kyndir hann undir ofgnóttarbálið eða verður slakað á klónni og leikur jafnaður, bara eitthvað aðeins?