Gott er að eiga góða að, segir máltækið. Við þekkjum það eflaust öll. Stundum nýtast góðir vinir þegar harmur verður, veikindi, vandræði eða hvað eina. Traustur vinur getur gert kraftaverk.
Eitt helsta deilumál samtímans er hversu mikið útgerðin á að borga fyrir aðganginn að auðlindinni. Meira, minna eða hvað? Nú fáum við að vita að þeir eigi að borga minna. Það er gott að eiga góða að.
Gunnar Bragi Sveinsson, ráðherra útgerðarmála skýrði í fréttum að heldur skyggi á hag útgerðarinnar og því beri að létta álögum af þeim. Þetta er frekar óvænt fréttaskýring hjá ráðherranum. En hún er víst látin duga til að lækka veiðigjöldin um fjóra milljarða.
Nýverið voru fréttir af hálfs milljarðs framlagi ríkissjóðs til að unnt hefði verið að gera kjarasamning milli útgerðarmanna og sjómanna.
Ekki er vitað hvort Gunnar Bragi hafi átt mesta aðkomu að þessum vendingum og ríkisframlaginu. Nærvera hans skaðar allavega ekki. Það var jú hann sem fór á hinn fræga leyndófund hjá LÍÚ. „Erum að fara á leyndófund LÍÚ segi þér síðar.“ Þannig skrifaði ráðherrann, þá þingmaður, árið 2011 í skeyti til Vigdísar Hauksdóttur árið 2011.
Sigurjón M. Egilsson.