Hringbraut til sóknar

Ánægjuleg er sú breyting hefur orðið á áhorfi á sjónvarp Hringbrautar. Það hefur stóraukist síðustu vikur. Sú staðreynd hefur staðfest að rétt sé að beina kröftum fyrirtækisins að uppbyggingu sjónvarpsins áður en kröftunum verður dreift meira og á fleiri staði.

Þegar sjónvarpið hefur sótt enn fram og skotið sterkari rótum undir reksturinn bíða tveir aðrir fjölmiðlar uppbyggingar, það er útvarp Hringbrautar og vefurinn hringbraut.is.

Hvenær kemur að þeim verkum er óljóst, en það verður.

Nú framleiðir starfsfólk Hringbrautar ótal marga þætti í hverri viku og ætlunin er að bæta við fljótlega.

Með sanni má segja að spennandi tímar séu framundan.

Sigurjón M. Egilsson.