Hringbraut er ungur fjölmiðill en sókndjarfur. Á bráðum hálfu öðru ári hefur Hringbraut náð að vera stærst allra þeirra sjónvarpsstöðva sem einungus miðla íslensku efni. Hringbraut er frjáls og óháð. Hringbraut er sannanlega heppin með eigendur.
Til að fjölmiðill geti sagt fullum fetum að hann sé frjáls og óháður þarf að hann búa við rétt skilyrði. Það gerir Hringbraut. Í dag er tilkynnt um að Jón von Tetzhner hafi gengið til liðs við eigendur stöðvarinnar. Það er okkur sem störfum á Hringbraut mikið fagnaðarefni. Hið fyrsta er, að það er sómi af Jóni og koma hans gerir hvorutveggja; styrkir grunn Hringbrautar og færir okkur enn frekar sanninn um frelsi ritstjórnar frá eigendum stöðvarinnar.
Ritstjórn Hringbrautar er ekki fjölmenn. Hún hefur eigi að síður miklu hlutverki að gegna. Hún gengur til sinna starfa sannfærð um að Hringbraut er frjáls og óháð. Eigendur stöðvarinnar eiga ekki hagsmuna að gæta í samfélaginu, ekki umfram það sem almennt er. Ritstjórnin er meðtvituð um þetta.
Hringbraut er ekki þjónn valdsins. Hringbraut er þjónn almennings og hennar er, meðal annars, að halda uppi umræðu um samfélagið og að draga sem flest tjöld frá. Sýna mannlífið á Íslandi.
Ritstjórn Hringbrautar vill að eigendur stöðvarinnar fái arð af fjárfestingu sinni. Að okkar mati er einungis en fær leið til þess. Hún er sú að auka verðmæti fjölmiðilsins með vandaðri dagskrárgerð með þá vissu að Hringbraut er og verður hlutlaus fjölmiðill.
Til þess er leikurinn gerður. Fólk mun geta treyst að Hringbraut er, og verður enn frekar nú, traustsins verð.
Hringbraut er ekki bara sjónvarpsstöð. Hringbraut er í raun þrír miðlar. Fyrir utan sjónvarpið, sem er mest áberandi og fyrirerðarmest, á Hringbraut einnig útvarpsstöðina Hringbraut fm 89,1 og vefmiðilinn hringbraut.is.
Nú skapast langþráð tækifæri til frekar uppbyggingar á útvarpi og vef Hringbrautar.
Kallað er eftir vönduðu talmálsútvarpi. Það er á teikniborði Hringbrautar. Með haustinu verður sótt fram á vefnum og hringbraut.is verður efldur sem fréttamiðill.
Áhorf hefur stóraukist og sett hafa verið markmið um að auka það enn frekar. Leiðin þangað er einföld; heiðarleg fjölmiðlun og eins sanngjörn og við á hverju sinni.
Fyrstu skrefin hafa verið stigin. Löng leið er framundan. Þá er gott að vita að séð hefur verið til þess að nægt nesti er til ferðarinnar.