Hringbraut ein á vaktinni?

Í fyrirsögninni er spurning, spurt er; er Hringbraut ein á vaktinni. Svarið er nei. ÍNN og N4 sinna einnig samfélagsumræðu.

Stóru sjónvarpsstöðvarnar, Ríkisútvarpið og Stöð 2, hafa slökkt á allri samfélagsmræðu, annarri en kosningaumfjöllun. Kastljós og Ísland í dag eru farin í sumarfrí. Því er ljóst að hlutverk annarra verður því meira. Reyndar er þessi staða nánast galin. Með hreinum ólíkindum.

Hringbraut er á sama tíma, og risarnir skríða í hýði sitt, að auka þjónustu við áhorfendur, auka samfélagsumræðuna. Og telur ekki vanþörf á.

Hringbraut frumsýnir nú tólf tíma, hið minnsta, að nýrri umræðu í hverri viku. Eftirspurnin er ótvíræð.

Þær sjónvarpsstöðvar sem sinna umræðu um samfélagið, Hringbraut, ÍNN og N4, sýna eflaust nú hversu þýðingarmiklar þær eru fyrir samfélagsumræðuna og sinna henni vonandi vel.

Það gera risarnir ekki.

Sigurjón M. Egilsson.