Hópur Sjálfstæðiskvenna hafa fengið nóg af Bjarna: Segjast hafa misst fjölda kvenna úr flokknum vegna hans

Sjálfstæðiskonurnar Jónína Sigurðardóttir, Elín Jónsdóttir, Berta Gunnarsdóttir, Karólína Íris Jónsdóttir og Ragnheiður Skúladóttir lýsa yfir stuðningi við Guðlaug Þór Þórðarsson, umhverifsráðherra í komandi formannskosningum í Sjálfstæðisflokknum, en hann mun mæta sitjandi formanni Bjarna Benediktssyni, á Landsfundi um helgina.

Þetta kemur fram í pistli þeirra á Vísi.

„Við þurfum að horfast í augu við það að undir stjórn Bjarna höfum við misst stóran hluta heillar kynslóðar sjálfstæðiskvenna úr flokknum. Það var einmitt í formannstíð hans, fyrir ekki svo mörgum árum, sem 11 konur af 14 sögðu sig úr stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna vegna óánægju með stöðu jafnréttismála innan flokksins.“

Hópurinn heldur áfram: „Við höfum líka misst margar öflugar konur til Viðreisnar sem og til annarra flokka. Við þurfum að fá þær til baka í flokkinn okkar, en það gerist ekki nema við tökum markviss skref til að gera hann aðgengilegan og aðlaðandi fyrir fjölbreyttan hóp með ólíkar skoðanir.“

Þá vill hópurinn meina að Guðlaugur Þór sé svarið við þessu vandamáli. Þær trúa því að hann geti leitt flokkinn áfram.

„Guðlaugur Þór er sá frambjóðandi sem hefur sýnt það að hann getur leitt áfram fjöldahreyfingu sem sameinar fjölbreytt fólk undir sjálfstæðisstefnunni. Við, sjálfstæðiskonur úr grasrót flokksins, ætlum að kjósa breytingar á sunnudaginn og styðjum Guðlaug Þór til formanns.“