Hluti kvótans fari á uppboð

Jón Gunnarsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins og formaður atvinnuveganefndar Alþingis, vill að gerðar verði veigamiklar athugasemdir á lögum um stjórn fiskveiða. Hann vill að í stað þess að útgerðir borgi veiðigjöld, verði hluti kvótans tekinn af þeim og hann síðan boðinn upp á opnum markaði.

Þannig segir Jón að opnist leiðir fyrir nýliða eða þá sem hafa of litlar veiðiheimildir. Hann hafnar því að stærri útgerðirnar nái öllum pottinum til sín, þar sem tryggja verði að nokkur geti keypt einsog hugur hans jafnvel stendur til.

Jón sér fyrir sér að jafnvel tugir þúsunda tonna verði á markaði, gangi þetta eftir. Hann hefur rætt þetta mál við Sigurð Inga Jóhannsson forsætisráðherra.

Viðtal við Jón, um þetta mál, verður sýnt á Hringbraut klukkan 21:00 í kvöld.