Hafna öll hringbraut

Meðan áhorf Hringbrautar hefur tvöfaldast, á örfáum vikum, hefur enginn helstu forystumanna stjórnarflokkanna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, viljað eða talið sig geta komið í viðtal á sjónvarpsstöðinni.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, svaraði engu þegar til hans var leitað. Þess ber að geta að hann hafði gefið mér vilyrði, ekki loforð en vilyrði, um að koma í viðtal til mín. Eftir að ég flutti mig til Hringbrautar ákvað Bjarni að svara engu, ekki einu sinni ítrekuðum skilaboðum. Hann kaus annað viðtal.

Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sagst ætla að koma í viðtal en hefur ítrekað dregið í land, sökum anna, að hennar sögn.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, svarar ekki skilaboðum og ekki hringingum.

Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður Framsóknarflokkinn, afþakkar í hvert sinn sem til hans er leitað.

Í sumar mun Hringbraut halda áfram umræðu og umfjöllun um samfélagsmál. Þó slíkt standi hvorki né falli með þátttöku einstakra stjórnmálamanna, má segja að stundum sé verra að hafa ekki aðgang að helsta valdafólki landsins.

Framundan eru þingkosningar og víst er að Hringbraut mun bjóða upp á fleiri umræðuþætti, meiri umfjöllun um íslensk stjórnmál en aðrar sjónvarpsstöðvar. Hvað sem forystufólkið gerir.

Sigurjón M. Egilsson.