Gunnari braga er alveg sama

„Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, skipaði aðstoðarmann sinn, Sunnu Gunnars Marteinsdóttur, og Viggó Jónsson, aðalfulltrúa Framsóknarflokksins í sveitarstjórn Skagafjarðar, í stjórn Matís í fyrradag.“ Þetta segir í Fréttablaðinu í dag.

Þetta gerir Gunnar Bragi slömmu áður en hann lætur af embætti. Fréttablaðið rifjar upp að Gunnar Bragi Sveinsson veitti styrki úr utanríkisráðuneytinu að upphæð 950 þúsund króna á síðasta degi sínum sem utanríkisráðherra. Alls styrkti hann fjögur félög vitandi að seinna um daginn yfirgæfi hann utanríkisráðuneytið.

Fréttablaðið segir að þremur stjórnarmönnum hafi verið vikið úr stjórn Matís kvöldið fyrir aðalfundinn. Einn hætti af sjálfsdáðum. Hringt var í þau þar sem þeim var tilkynnt að þjónustu þeirra hjá Matís væri ekki óskað lengur.

Hvers vegna gerir Gunnar Bragi þetta í miðri kosningabaráttu? Sennilegast er að honum er alveg sama um afleiðingarnar. Hann er í andstöðu innan flokksins og veit að hann nær kjöri.

Miðað við fyrri vinnubrögð er von á fleiri fréttum af endaspretti Gunnars Braga í atvinnuvegaráðuneytinu.