Morgunblaðsins er Davíð Oddsson forsetaframbjóðandi enn skráður ritstjóri blaðsins.
„Þetta er fín lína og við sem starfsfólk Háskóla Íslands og opinberra stofnana verðum að gæta hlutleysis. Ég legg mikla áherslu á það,“ sagði Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, þegar blaðamaður Morgunblaðsins spurði rektor hvort hann telji eðlilegt að einn forsetaframbjóðenda, Guðni Th. Jóhannesson, tjái sig opinberlega á vettvangi háskólans á meðan hann er í framboði.
Guðni er í leyfi frá störrfum sínum við Háskóla Íslands.
Morgunblaðið segir frá fyrirlestri sem Guðni hélt í tilefni af 40 ára afmæli loka þorskastríðsins, en hann skrifaði doktorsritgerð um efnið.
„Í fyrirlestrinum gagnrýndi hann Morgunblaðið fyrir að hafa ekki fjallað um þessi 40 ára tímamót. Þá skaut hann á Staksteina blaðsins,“ segir í frétt Morgunblaðsins.
Það er nú það. Átti ekki að hafa fyrirlesturinn vegna þess að framundan eru forsetakosningar, eða átti ekki að fá Guðna til að tala eða til gæta jafnvægis, eða átti að fá alla forsetaframbjóðendurna níu, eða á að leyfa þeim öllum, ekki síst Guðna, að vera ritstjóri Morgunblaðsins og skrifar þar eða hafa áhrif á það fólk sem skrifar þar nafnlausar ritstjórnargreinar?
Víst er að kosningabaráttan tekur á sig margar myndir. Og víst er að ég, sem þetta skrifar, fer í sama far og svo margir aðrir, nánast allir, að líta mest til þess sem stuðningsmenn Davíðs setja fram. Davíð hefur náð að stjórna nánast allri umræðu í kosningabaráttunni, alla vega til þess. Enn með litlum árangri.
Sigurjón M. Egilsson.