Guðmundur bendir á áhugaverðan punkt: „Það skiptir í raun litlu hvort Guðlaugur vinnur eða ekki“

„Eitt þykir mér blasa við: Hér leikur Guðlaugur athyglisverðan leik. Augljóslega er hér naskur leikmaður á ferð.“ segir Guðmundur Steingrímsson, fyrrverandi þingmaður, um framboðsslaginn í Sjálfstæðisflokknum sem er framundan. Þetta kemur fram í grein hans sem birtist í Fréttablaðinu í dag.

„Sjáiði til. Það skiptir í raun litlu hvort Guðlaugur vinnur eða ekki. Fái hann umtalsvert fylgi, sem líkur eru jú á – segjum 30 til 40 prósent – hefur hann í raun náð nægum árangri. Hann verður þar með leiðtogi valdablokkar í þessum flokki valdablokka. Fram hjá honum og fylgisfólki hans verður ekki gengið. Staða hans verður sterkari. Á sama tíma veikist staða Bjarna. Í flokknum verða tvær fylkingar með tveimur leiðtogum.“ segir Guðmundur.

Hann viðurkennir þó að vissulega muni staða Guðlaugs veikjast ef hann tapi stórt.

„Hér er því teflt djarft, en að því gefnu að ég hafi rétt fyrir mér í mínu mati eru töluverðar líkur á að bragð Guðlaugs heppnist. Ef markmiðið er að senda Bjarna enn og aftur í pontu í Valhöll til þess að flytja barátturæðu um varnarsigur, eftir eitthvað sem hæglega má túlka sem afhroð, þá er ekki ólíklegt að það takist. Ætli Bjarni þurfi ekki að hafa meira fyrir því að koma í veg fyrir þá stöðu, heldur en Guðlaugur að koma henni í kring.“ segir hann.

Í grein Guðmundar fer hann yfir víðari völl, og ræðir hvert raunverulegt mikilvægi formannskosninganna er fyrir þjóðina alla. Hægt er að lesa hana í heild sinni hér.