Góð frétt má ekki bíða

Þeir fjölmiðlar sem höfðu endurrit af vitnisburði Sturlu starfsmanns Seðlabankans höfðu ekkert val, engann kost annan en birta fréttina. Hversu stutt er til kosninga breytir engu þar um. 

Fólk hefur beðið, og bíður enn, eftir að vita sem mest og sem best um hvað þeim fór á milli, Davíð og Geir. Og að vonum. Símtalið og lánveitingin til Kaupþings er stórt mál, mál sem verður að upplýsa að fullu.

Hvað sem fólki kann að þykja um þá sem koma við sögu í fréttinni og þá staðreynd að þeir sem töluðu saman í símann eru báðir fyrrverandi formenn Sjálfstæðisflokksins og hversu stutt er til kosninga breytir engu. Það má ekki gera það. Sá sem aflar frétta í starfi sínu má ekki víla og díla með fréttina. Staðfestar fréttir eiga að koma fyrir augu almennings.

Annað er ekki í boði.