Þegar ég talaði við Harald Sverrisson, bæjarstjóra Mosfellinga, um hugsanlegt sjúkrahúsi í þeirra einstaka og magnaða bæjarlandi, missti ég trú á efni viðtalsins. Fannst tilefni þess að ég talaði við þennan ágæta bæjarstjóra vera gaggalagú.
Mér fannst þá, og enn frekar nú, að fyrirhuguð bygging sjúkrahúss sé furðu hugmynd sem eigi eftir að reynast öllum sem á trúa hin mesta raun. Þetta er allt svo galið.
Á Hringbraut eru viðtöl einsog það sem Haraldur mætti til 12 til 14 mínútur. Í viðtalinu miðju fannst mér nóg komið og tók að tala við Harald um allt annað og mun merkilegra. Til dæmis að uppbygging er mikil í Mosfellsbæ. Á þessu ári eða því næsta verða íbúar orðnir tíu þúsund, fjöldi alvöru fyrirtækja hefur leitað til bæjarins eftir lóðum til alvöru uppbyggingar.
Mosfellsbær er fínt sveitarfélög og það er ósanngjarnt að draumar einhverra manna varpi skugga á það fína samfélag sem Mosó er.
Best er að láta af þessari kjánaumræðu um sjúkrahús í Mosfellsbæ. Nóg er um að vera í raunheimum.