Fyrrverandi formenn í felum

Formennirnir fyrrverandi, Össur Skarphéðinsson og Árni Páll Árnason, hafa ekki svarað í símana sína eftir að þeir féllu í kosningunum á laugardaginn. Það er afskaplega lélegt af þeim og aumt. Nú hefur Oddný Harðardóttir sagt af sér formennsku. Hún er hraustari en Össur og Árni Páll.

Þrátt fyrir að Oddnýju sé verulega brugðið og öllum er ljóst hversu erfitt hún á eftir kosningarnar hefur hún samt svarað öllum, mætt þar sem hún hefur verið beðin um að koma. Oddný hefur gert allt sem hún getur eftir áfallið í kosningunum.

Það er lítilmannlegt að fara í felur þegar illa stendur á. Hefði úrslitin verið á annan veg er ekki nokkur vafi á að meira framboð væri, bæði af Össuri og Árna Páli, en eftirspurn.

Staða Samfylkingarinnar er alvarleg. Það fólk sem ber mesta ábyrgð má ekki og getur ekki hlaupið í felur. Það gerir Oddný ekki. Hún er maður að meiri.