Froðusnakkur, fífl eða fínn forseti

 Nú mun sannast hvort Donald Trump, verðandi forseti Bandarikjanna, sé froðusnakkur, fífl eða maður til að vera forseti þessa einstaka ríkis. Ríkis sem lék sig í hreint ótrúlega kastþröng þar sem að endingu var aðeins hægt að velja milli tveggja forsetafrmbjóðenda, frambjóðenda sem áttu það sameiginlegt að meirihluti landsmanna vantreysti þeim báðum.

Bandaríska þjóðin kaus Donald Trump til að verða forseti. Í nótt, þegar staðan varð ljós í kosningunum, tóku hlutabréf, um allan heim, að falla og jafnvel hrynja í verði, múslimar óttast og fyllast kvíða, Mexikóar, nágrannar Bandaríkjanna, þurfa væntanlega að grípa neyðaraðgerða í ríkisfjármálum, gjalddmiðillinn fellur og fellur og sennilega þarf að hækka vexti þar með miklum áhrifum á kjör alls fólks og fyrirtækja, áfram er hægt að telja. Allur heimurinn verður var við hver var kjörinn næsti forseti Bandaríkjanna.

Hvað verður um öll stóru orðin, allar yfirlýsingarnar? Verður Hillary Clinton handtekin og sett í fangelsi? Verður reistur ógnarlangur múr milli Bandaríkjanna og Mexikó og verður þetta og verður hitt?

En hvers vegna var Trump kjörinn forseti? Það veit enginn. Ein hugsanleg skýring er mótmæli fólks við valdastéttirnar, við stjórnmálafólk, við sérhagsmuni og þreyta fólks á nútíma stjórnmálum.

Eina leiðin til að kalla fram breytingar, til að sýna vilja sinn í verki var kannski sú að kjósa Donald Trump sem forseta Bandaríkjanna. Svo kemur bara í ljós hvort hann er froðusnakkur, fífl og kannski mögulega nothæfur sem forseti. Bandaríska þjóðin tók áhættuna vitandi vits um áhrif þess um allan heim.