Formaður Framsóknarflokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, undrast stórkostlegt tap Framsóknarflokksins í alþingiskosningunum. Hann telur ótt og títt upp afrek flokksins á kjörtímabilinu sem var að renna sitt skeið. Skuldaleiðréttinguna og uppgjörið við kröfuhafa.
Best að skoða þetta tvennt. Byrjum á skuldaleiðréttingunni og það með augum konu sem þekkir hana betur, af eigin raun, er formaður Framsóknarflokkurinn.
Þorgerður Erlingsdóttir, einstæð tveggja barna móðir, sótti um leiðréttinguna og fékk. Hún kom í viðtal í Þjóðbraut og eins í Fréttatímanum.
„Þegar ég fór að gera skattaskýrsluna mína og fékk bráðabirgðaútreikning, fékk ég algert áfall,” segir Þorgerður. Hún segist hafa hringt oftar en einu sinni í skattinn og fengið mismunandi svör, til dæmis að þeir sem hefðu fengið leiðréttingu Sigmundar Davíðs, hefðu afsalað sér vaxtabótunum. „Það hafði nú algjörlega farið fram hjá mér. Það er ljóst að þessi leiðrétting var algert frat frá upphafi til enda og kemur verst við þá sem hafa minnst milli handanna. Með því að taka vaxtabætur af fullt af fólki í mínum sporum er hægt að borga skuldaleiðréttinguna upp og vel það. Ég er að greiða leiðréttinguna sjálf með þessari skerðingu og hún gæti orðið til þess að ég hefði missti húsnæðið mitt, ef ég hefði ekki stuðning móður minnar.”
Trúlega hafa hvorki Þorgerður, né önnur fórnarlömb leiðréttingarinnar, kosið Framsókn að þessu sinni.
Hvað varðar uppgjörin við kröfuhafana verður að taka fram að þáverandi formaður Framsóknarflokksins var í þeirra hópi. Um það þarf ekki fleiri orð.