Í snatri var boðað til krísufundar í þingflokki Framsóknarflokksins. Það var sagt vera vegna stöðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns flokksins. Hvað kallaði á að fundur yrði haldinn í snatri hefur ekki komið fram. Í sjónvarpsumræðum gærkvöldsins var erfitt að meta hvort formaðurinn er stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar. Ekki er vitað hvort sú óvissa hafi orðið til þess að krísufundur var haldinn.
Eftir maraþonfund koma þingmennirnir hver öðrum glaðari og lýsa yfir fullum og ótvíræðum stuðningi við formann sinn; Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Þann sama og er sagður vera ástæða til þess að krísufundurinn var haldinn. Flókið? Já.
Rúm vika er til flokksþings Framsóknarflokksins. Áður verður kjördæmisþing í Suðurkjördæmi þar sem valið verður á framboðslistann þar. Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður og forsætisráðherra, er einn í framboði til fyrsta sætis. Staðan hans heimafyrir er allt önnur og tryggari en var hjá formanninum, en hann var einsog kunnugt er einn af fjórum frambjóðendum í fyrsta sæti framboðslistans í Norðausturkjördæmi.
Staðan innan Framsóknarflokksins er flókin. Sé raunin sú að Sigmundur Davíð hafi fengið fullkomna stuðningsyfirlýsingu frá þingflokki sínum í dag, en samt séu þar þingmenn sem vilja kjósa annan og einkum og sér í lagi að kosið verði til forystu flokksins er staðan sérstök.