Þrjú af fimm kjördæmisfélögum Framsóknarflokksins hafa samþykkt að flokksþingi verði flýtt. Einungis félagið í kjördæmi formannsins vildi ekki flýta flokksþingi. Reykvíkingar hafa ekki enn tekið ákvörðun. Hér eftir breytir engu hver þeirra vilja kann að verða. Flokksþingi verður flýtt.
Víst er að þessi niðurstaða verður Sigmundi Davíð þung. Hann reyndi hvað hann gat til að komast hjá flokksþingi. Án árangurs.
Flokksþing verður haldið fyrir kosningar þar sem annað hvort gerist; núverandi forysta endurnýjar umboð sitt eða ný verður kjörin. Allt í óþökk núverandi formanns.