„Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er ekki gert ráð fyrir aukningu á fjárveitingum til háskóla landsins næstu fimm árin. Framboð á námi og þjónustu háskóla landsins er því í verulegri hættu vegna fjárskorts.“
Þetta er bein tilvitnun í skrif háskólaráðs Háskólans á Akureyri. Við höfum svo sem heyrt þetta áður, en alltof fáir hafa andmælt framsetningu fjármálaráðherrans og hans fólks. Hvert og eitt okkar veit að þetta er tómt rugl, við þessa áætlun er ekki hægt að standa. Hún er dautt plagg, hið minnsta hvað þetta varðar.
Nú þegar eru íslenskir háskólar fjarri öðrum háskólum þegar kemur að fjárveitingum. Þeir eru miklir eftirbátar. Það vitum við öll og líka þau sem settu þetta í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, það dæmalausa plagg, plagg sem þrátt fyrir allt fær einhvern sess í umræðunni.
Nú þarf að byrja upp á nýtt. Setja saman nýja fjármálaáætlun, áætlun sem styðst við raunveruleikann, áætlun sem mark er takandi á, áætlun sem er ekki dæmd úr leik vegna þess að í hana vantar teningu við raunveruleikann.
Skilaboðin eru skýr; gerið betur. Á meðan, er ekki mark á áætluninni takandi.