Ætlum við að eyða orkunni í að rífast um hvort við séum feitasta þjóð í heimi eða í sjötta sæti á þeim lista eða finnst okkur meiri skynsemi í að snúa blaðinu við og verða heilbrigðasta þjóð í heimi?
Á þessa leið spurði Lukka Pálsdóttir í þætti sínum Heilsuráð Lukku á Hringbraut á mánudagskvöld, en þættir hennar sem verða á dagskrá stöðvarinnar fram undir vetrarlok, fjalla um leiðina til betra mataræðis og næringarríkara lífs.
Lukka er þjóðkunnur veitingamaður í Happi - og heilbrigður lífsstíll er eitt hennar helsta hugðarefni: \"Tölfræðin segir okkur að offita er að verða stærsta ógn við heilsufar Íslendinga,\" sagði hún í þætti gærkvöldsins - og bætti við. \"og ráðin við því hljóta að vera forvarnir. Á sama tíma og við sjáum þessa þróun skýrt og greinilega erum við að afnema sykurskatt, skera niður íþróttakennslu í skólum og stöndum í röðum til að kaupa kleinuhringi.\"
Og Lukka spyr: \"Er ekki tími til kominn að við horfum af hreinskilni í spegil og hysjum upp um okkur buxurnar? Við höfum þekkinguna, hráefnið og úrræðin til að verða heilbrigðasta þjóð í heimi með öflugasta heilbrigðiskerfið. Eina sem vantar er viljann,\" var leiðsögn Lukku í þætti gærkvöldsins, en hann má sjá hér inni á vef stöðvarinnar eins og alla aðra þætti hennar.