Fær guðni meir en helming atkvæða?

Einu sinni hefur frambjóðandi fengið meira en fimmtíu prósent atkvæða í kosningum um nýjan forseta. Það var árið 1968 þegar Kristján Eldjárn var kjörinn. Þá voru aðeins tveir í framboði, Kristján og Gunnar Thoroddsen og því nokkuð augljóst að sigurvegari þeirra kosninga fengi meira en helming greiddra atkvæða.

Vigdís Finnbogadóttir og Ólafur Ragnar Grímsson urðu bæði að fara í kosningar þar sem þau fengu mótframboð. Þau sigruðu bæði örugglega í þeim kosningum. Kosningarnar nú er allt annars eðlis, þar sem nú er verið að kjósa nýjan forseta.

Enginn forseti hefur verið kjörinn með eins litlum hlut greiddra atkvæða og Vigdís Finnbogadóttir sem fékk rétt um þriðjung atkvæða.

Allar skoðanakannanir sem gerðar hafa verið, eftir að Guðni Th. Jóhannesson bauð sig fram, hafa sýnt hann með nokkuð yfir helmingsfylgi. Eftir á að koma í ljós hvort honum haldist svo vel á fylgi að hann fái yfir helmging greiddra atkvæða. Það yrði sögulegt, ekki síst þar sem níu eru í framboði til forseta Íslands.

Kann það að vera mesta spennan í komandi kosningum?

Sigurjón M. Egilsson.