Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Gunnar Bragi Sveinsson segjast ósáttir við fjölmiðla. Trúlegast er það gagnkvæmt. Hið minnsta hvað Sigmund Davíð varðar. Hann talar ekki við fjölmiðla og það er hreint út sagt óþolandi.
Þeir félagar eru ósáttir við að fjallað sé um að þeir hyggist ekki sækja aldarafmælisveislu síns eigins flokks. Þá verður bara svo að vera.
Gunnar Bragi er ágætur. Hann sinnir fjölmiðlum og hefur manndóm til að koma þó hann sé ekki sáttur með allt sem fjölmiðlar segja og skrifa. Það hef ég reynt á eigin skinni. Kann vel við þannig týpur.
Sigmundur Davíð er allt annar maður. Miðað við hvaða hlutverk hann hefur haft í samfélaginu er ekki við það unandi að hann svari ekki fjölmiðlum, veiti ekki viðtöl. Því er bara ágætt að hann sé ósáttur við fjölmiðla. Það er gott á hann.