Eru bjarni og sigurður ingi í feluleik?

Það voru Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson sem lofuðu kosningum í haust. Það var Bjarni sem sagði að kjörtímabilið verði stytt um eitt löggjafarþing. Þannig var það.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segist kominn heim. Og það munar um minna. Friðurinn virðist úti. Hann nánast afboðar kosningar í haust. Ósætti eykst. Meðan þetta gengur yfir eru þeir hvergi sjáanlegir Bjarni og Sigurður Ingi. Þeir virðast vera í feluleik.

Þeir svara ekki Hringbraut beiðni um viðtöl. Gott og vel með það. Hringbraut lifir án þeirra. Gott væri samt að þeir létu svo lítið að koma fram í þeim þóknanlegum fjölmiðlum. Svör verða að fást um hvort Sigmundur Davíð er í sambandi við þá. Hvort það sem hann segir er þeirra með samþykki, þeira vilja. Talar hann fyrir hönd stjórnarflokkanna? Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar?

Það ástand sem hefur skapast eftir heimkomu formanns Framsóknarflokksins er óþolandi. Og það sem meira er, það er óþarft.

Bjarni Ben og Sigurður Ingi, sinnið skyldum ykkar. Hættið feluleiknum. Talið við þjóðina.