Er vinstrið það allra versta?

Sjálfstæðismenn eru ósparir á að segja Pírata og jafnvel Viðreisn vera vinstri flokka. Hjá þeim virðist varla hægt að hafa verri orð um nokkurn flokk en segja hann vera vinstri flokk. Ekki er að sjá að mikill árangur sé af þessu bragði Sjálfstæðisflokksins. En hvers vegna?

Kannski vegna þess að fjölda fólks er nákvæmlega sama hvort einhver segi annan vera vinstri eða hægri. Þau hugtök hafa ekki lengur það gildi sem þau áður höfðu. Baráttuaðferðin er þess vegna gagnslítil. Sem sjá má á fylgistölum.

Víst er að baráttan um fylgið mun harðna þá fáu daga sem eru fram að kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur að átta sig á að flestum kjósendum er mikið sama um hvern þeir kalla vinstri og hvern ekki. Þetta margnotaða skammaryrði þeirra hefur ekki sama mátt nú og áður.

„Þú ert meira arfakálið,“ sagði fyrrum vinnufélagi minn við mig eitt sinn, þegar honum mislíkaði eitthvað sem ég sagði. Sá var orðvar og að kalla einhvern arfakál var mikið í hans huga. Vinstrigrýla Sjálfstæðisflokksins er jafnvel máttlausara hnjótsyrði en arfakál.

Að segja einn og annan vera vinstri kann að virka vel innan Valhallar. Varla utan hennar.