Er viðreisn krataflokkur?

Þorsteinn Víglundsson, fyrrum framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, mun sækjast eftir að fara fyrir framboði Viðreisnar í öðru Reykjavikurkjördæminu.

Aðspurður um pólitíska þátttöku og afstöðu segist hann hafa hrifist af Alþýðuflokknum, þegar hann var undir stjórn Jóns Baldvin Hannibalssonar. Þorsteinn segist vera hægri krati.

Er Viðreisn þá krataflokkur? Svarið birtist í Þjóðbrautarþætti kvöldsins.

Þorsteinn sem var í hátt launaðri stöðu hjá SA mun lækka verulega í launum verði hann kjörinn á þing. Hann segir konuna sína hafa ekki verið hrifna af ákvörðuninni um þingframboð, ekki í fyrstu.

Þorsteinn er í viðtali í kvöld þar sem rætt verður um kvótakerfið, krónuna, ESB og margt fleira.