Stjórnarandstöðuflokkarnir á Alþingi; Samfylking, VG, Björt framtíð og Píratar hafa með nokkuð ákveðnum hætti sagst ekki hafa vilja eða löngun til að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki að loknum kosningunum í lok næsta mánaðar. Það er ekki gott fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Þorsteinn Víglundsson, sem er leiðtogi á framboðslista Viðreisnar í öðru kjördæmi Reykjavíkur, hefur sagt að hann sjái ekki fyrir sér að Viðreisn vinni með öðrum eða báðum núverandi stjórnarflokkum, það er Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki, á næsta kjörtímabili. Nema þá aðeins að flokkarnir taki miklum, hið minnsta nokkrum, breytingum.
Bjarni Benediktsson og Sjálfstæðisflokkurinn er því í þröngri stöðu. Flestir vilja ekki vinna með honum og þeir sem loka ekki á flokkinn vilja að hann nánast taki hamskiptum. Kostirnir virðast fáir.
Það er eðli Sjálfstlæðisflokkinn að vera í stjórn. Hugsjónir og hagsmunir flokksins og flokksfólksins eru þannig. Stjórnarandstaða er ekki á óskalistanum. Hvað er þá til ráða?
Framsókn. Já, en allt stefnir í að Framsókn verði ekki til mikils gagns eftir kosningar, allavega verður þingstyrkur Framsóknar ekkert í samanburði við það sem nú er. Í hópi núverandi stjórnarandstöðu á þingi er lítið að hafa fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Kannski það sem lifir af Samfylkingunni. Varla annað.
Viðreisn kann að verða eini möguleiki Bjarna Benediktssonar til að verða forsætisráðherra haustið 2016. En til að Viðreisn myndi ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki þarf valdaflokkurinn mikli væntanlega að gefa eftir. En hvað?
Þjóðaratkvæði um viðræður við ESB. Ekkert mál. Búið að koma búvörusamningunum í tíu ára skjól. Engu hægt að breyta þar, allt klappað og klárt. Kvótinn? Já, kvótinn. Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar og frændi Bjarna, hefur opnað fyrir að aðeins þrjú prósent kvóta úrgerðanna fari á uppboð. Segjum að samningar takist um tvö, helmingur þess komi úr byggðakvótum og öðru sameiginlegu og útgerðin splæsi einu prósenti sem hún svo kaupir sjálf á uppboði. Ekki flókið.
Samkvæmt þessu verður næsta ríkisstjórn þriggja flokka. Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking.
Ráðherrar Sjálfstæðisflokks verða; Bjarni Benediktsson, Ólöf Nordal, Kristján Þór Júlíusson og Guðlaugur Þór Þórðarson.
Ráðherrar Viðreisnar verða; Benedikt Jóhannesson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Þorsteinn Víglundsson og Hanna Katrín Friðriksson.
Ráðherrar Samfylkingar verða; Oddný Harðardóttir, Össur Skarphéðinsson, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Árni Páll Árnason.
Tólf ráðherrar og þar af fimm konur. Og það sem meira er, þrír ráðherrar sem sátu í hrunstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar; Guðlaugur Þór, Þorgerður Katrín og Össur.
e.s. Fari svo að Samfylkingin verði ekki með kemur Framsókn til greina. Samt er það óvíst framyfir flokksþingið.