Er framsókn utan þjónustusvæðis?

Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, sagðist aðspurður, í Þjóðbraut, vera í miklu sambandi við Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Framsóknar og forvera Sigurðar Inga í stjórnarráðinu.

Fréttastofa RÚV tók viðtal við Sigmund Davíð í dag sem sýnilega og auðheyranlega vissi minna um gang mála hjá ríkisstjórninni en almennt gerist hjá fólki sem fylgist sæmilega vel með.

Hann var ekki spurður um eða hafður með í ráðum með ákvörðun kjördags og hann veit ekkert um hvað væntanleg verðtryggingarmál innihalda. Af vanþekkingu formannsins er sem annar þeirra, Sigurður Ingi eða Sigmundur Davíð, sé utan þjónustusvæðis og samskipti þeirra því óeðlilega takmörkuð síðustu daga.

Víst er að þekkingarleysi Sigmundar Davíðs stafar af því að Sigurður Ingi leggur sig ekki fram um að upplýsa formann sinn. Hvar endar þetta hja Framsókn.